Labor day

jæja þar sem ég hef ekkert að gera skal ég henda inn bloggi. Ég er komin heim frá MV og endaði þetta skrautlega. Matthew veiktist í 2 daga svo charlotte í 1 dag og svo ég og Matthew aftur og svo Charlotte aftur þannig að á leiðinni heim vorum við 3 í aftursætinu hóstandi og sjúgandi upp í nefið.

Mikið var gott að komast aftur heim. Victoria reyndar ekki heima en hún skrapp til þýskalands. Kemur samt í kvöld þannig að þetta er allt í góðu.  Skrapp í bíó sá the Rocker ágætismynd Teddy Geiger svaka sætur og allt. 

Skrapp inní Manhattan í gær, gerðist allsvakalega menningarleg og ákvað að skoða Metropolitan museum of modern art. Svakalega flott safn og komst ég aðeins yfir svona 60% en þá var ég orðin of þreytt á menningu og röllti um í Central park. 

Annars er frídagur í dag. Labor day sem markar endalok sumarsins. Efir daginn í dag þá má samkvæmt gömlum reglum ekki klæðast hvítu en þeir sem þekkja mig vita að ég læt það ekki hafa nein áhrif á mig. Klæðist hvítu frá toppi til táar alla daga allt árið! Whistling 

æji vá er svo ekki í bloggandanum þessa dagana. Ekki gaman en þúst hér er allaveg nýtt blogg.

Annars óska ég öllum gleðilegs nýs skólaárs. W00t Hér á bæ ríkir mikil gleði en skólinn byrjar á miðvikudaginn!! 

bæ í bili!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiðrún

jii leiðinlegasta blogg sem ég man eftir, biðst afsökunar en allavega blogg!

Heiðrún, 1.9.2008 kl. 18:58

2 identicon

haha......... já þú í hvítu?!??? þú reyndar átt sjúklega flottan hvítann jakka síðan ur útskriftinni :) eeeeeeeeeen já gott að þú ert komin "heim" til sea cliff aftur svo þú þurfir ekki að vera svona einmanna beibí :) hafðu það gott sætasta :)

Jóhanna Hlíf (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 22:42

3 identicon

ég man eftir hvíta jakkanum! geðveikur jakki!!! hafðu það gott skvís! ;)

Steinka (IP-tala skráð) 3.9.2008 kl. 15:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband